|
|
08.01.2008 22:42:20 / grb
Já nú eru það nýir tímar í nýu landi á nýrri síðu www.gummiben.com Kíkið þangað og smellið á crtl+D eða Bookmarks -> add page to bookmark
»
31.12.2007 20:05:34 / grb
Við viljum óska vinum og fjölskyldu gleðilegs árs og þakka dyggum lesendum fyrir samveruna á þessu ári sem senn er liðið. Við hlökkum til að deila með ykkur áhyggjum okkar á ánægjustundum í bloggheimi á næsta ári. Kveðjur úr sveitinni.
»
19.12.2007 12:14:42 / hrv
Jæja, nú styttist aldeilis í brottför frá Lundi, heimkomu til Íslands, leggjum í'ann innan við sólarhring. Gummi fer í próf á eftir, búinn kl. 19 að staðartíma og þá á aðeins að dekra við sig. Svo leggjum við í hann klukkan 8 í fyrramálið upp á Kastrup og lendum rúmlega 16 í KEF. Við vorum á jólagleði í gær hjá bekknum hennar Birnu. Allir lögðu eitthvað til á hlaðborð, svo var föndrað, sungið og borðað, aðallega þó föndrað, voða gaman. Birna fór reyndar ekki í skólann í dag, vaknaði með hálsbólgu og kíghósta, ef við værum ekki að fara á morgun hefði henni líklega verið fleygt í skólann. En í ljósi aðstæðna ákváðum við að hafa hana heima svo hún yrði hress á morgun. Allavega gleðilega hátíð og sjáumst fljótlega til sjávar og sveita. hrv
»
15.12.2007 13:28:20 / grb
Frá íslandi fréttum við að jólasveinarnir fjúki til byggða einn af öðrum eða komi í fylgd björgunarsveitamanna en hér í Lundi fer minna fyrir þeim en eitthvað láta þeir þó flakka í einn og einn skó við tækifæri. Ég frétti reyndar frá einum í USA sem gaf vatn í skóinn.......spurning hvort hann hafi pissað í skóinn ? Ég er búin að fara í tvö próf og hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel en við sjáum bara til og tökum á vandamálunum þegar þau koma upp og ekki degi fyrr. Eitt próf er svo eftir og er það Datorkommunikation sem verður á miðvikudaginn og er ég að byrja að læra fyrir það núna. Helga er svo á fullu að klára heimaprófið sitt fyrir mánudag og þarf svo reyndar að fara í einhverja tíma í næstu viku. Í morgun skellti ég svo KEA hangikjöti í pott og lét það malla, svo það verður jólalegt hjá okkur í kvöld, er búin að vera að prófa mig áfram með "jólaöl" hérna en ekki fundið það eina rétta, það er alltaf eitthvað aukabragð af þessu sulli hérna. Við fengum svo sendar myndir og video frá jólatónleikunum hennar Karenar heima á Hvammstanga og vorum við alveg að rifna úr stolti yfir stelpunni, hún bæði spilaði á píanó og söng eins og engill, sú á eftir að verða fín söngkona, vonandi heldur hún aukatónleika þegar við komum heim. Á fimmtudaginn fórum við svo eldsnemma með Freyju á leikskólann en þá var Lúsíudagurinn haldinn hátíðlegur hér í bæ og hvítklæddar lúsíur með kertakórónur sungu með aðstoð rauðklæddra jólasveina. Eftir sönginn var svo borðaður morgunmatur og hinir rómuðu Lúsíukettir etnir, en það eru rúsínubollur með saffran kriddi ofan á sem gerir þær rauðgular og fallegar. Núna á þriðjudaginn verður svo húllumhæ í skólanum hjá Birnu og er allri fjölskyldunni boðið þangað, það verður gaman að sjá hvað verður boðið upp á þar fyrir augu, eyru og bragðlauka. Ég var svo að smella inn nokkrum myndum úr vélinni og enn sem fyrr eru það minnstu hlutirnir sem njóta mestrar athygli !!!!! P.s. það er skoðanakönnun í gangi hérna hægramegin á síðunni......takið þátt!!
»
10.12.2007 08:54:08 / hrv
Núna eru aðeins tíu dagar í að fjölskyldan komi/fari til Íslands. Þangað til verður ansi mikið að gera hjá okkur öllum, dætur eru nú báðar komnar í sína skóla, mjög glaðar báðar tvær. Við Gummi í próflestri, hann fer í 2 próf í þessari viku og eitt í næstu, og ég er í heimaprófi sem ég skila á mánudaginn eftir viku. Svo hefur aðeins verið rætt um jólasveina á þessu heimili en í Svíþjóð kemur víst bara einn jólasveinn á aðfangadag og gefur börnum gjöf. Birna heldur því hins vegar fram að íslensku jólasveinarnir 13 setji það ekki fyrir sig að koma hingað að setja í skó íslenskra barna. Hún heldur því líka fram að ónefnd vinkona sín hafi fengið í skóinn frá 1. desember !!! Birna ætlar allavega að setja skóinn út í glugga í kvöld og svo sjáum við bara til hvort þessi íslensku komast til Svíþjóðar eða ekki .... hrv
»
05.12.2007 22:39:42 / hrv
Florence Nightingale stóð sig bara nokkuð vel í dag enda voru sjúklingarnir til mikillar fyrirmyndar. Birna líður betur, er samt enn með hita og hálsbólgu og fer ekki í skólann á morgun. Augun á Freyju eru miklu betri þótt beita þurfi hálfgerðu ofbeldi til að koma dropunum á sinn stað, hún er svo ansi ákveðin stúlkan ... Gummi tekur svo vaktina aðeins á morgun meðan ég fer og hitti hópinn minn fyrir kynninguna á föstudaginn. Annars hlökkum við bara mikið til að komast heim um jólin og láta stjana við okkur og leyfa öðrum að njóta dætranna !!!! hrv
»
04.12.2007 21:01:35 / hrv
Eins og fram hefur komið á síðu þessari er Freyja með sýkingu í augunum og fórum við með hana á heilsugæsluna í morgun sem er hérna nálægt. Við fórum inn um dyr og settumst í huggulegan sófa og biðum eftir að einhver kallaði á okkur. Engin var fyrir innan borð sem merkt var information. Inn kom fullt af fólki og Freyja heilsaði öllum og flestir henni en engin gaf sig á tal við okkur. Eftir nokkrar mínútur velti Gummi upp þeirri spurningu hvort við værum örugglega á réttum stað ... og fór og skoðaði betur hvað stóð á hurðinni. Þá var þetta útibú sænsku félagsþjónustunnar. Við fórum út og inn um næstu dyr þar sem okkur skildist að væru læknar til húsa og þegar inn var komið fundum við tannlæknalyktina alræmdu. Þá sagði Gummi okkur Freyju bara að bíða, hann skildi nú finna rétta staðinn sem hann og gerði. Þar tók Anny hjúkrunarfræðingur á móti okkur, skoðaði Freyju og skrifaði svo upp á augndropa fyrir hana. Svo nú fer henni vonandi að batna og getur opnað augun á morgnana án þess að bleyti þurfi upp í þeim fyrst. Birna mín kvartaði svo yfir höfuðverk í dag en henni var ekki vorkennt mikið, bara sagt að borða kvöldmatinn sinn og þá myndi henni örugglega líða betur. Henni leið ekkert betur og lagðist fyrir og þegar ég strauk á henni ennið áður en hún fór að sofa var hún sjóðandi heit. Svo núna eru báðar heimasæturnar lasnar og ég mun því bregða mér í Florence Nightingale búninginn á morgun. Góðar stundir.
»
03.12.2007 15:56:02 / grb
Jæja nú klárast þeir einn af öðrum kúrsarnir og ekkert eftir nema að þreyta jólaprófin. Í dag var kynning á verkefninu sem við höfum verið að vinna að og í kvöld verður endanlega skýrsla tilbúin og öllu skilað á sérstakri síðu sem við gerðum til að birta niðurstöður á. Freyja var heima í dag þar sem hún er komin með einhverja sýkingu í augun og við þurfum reglulega að strjúka mesta gröftin svo blessað barnið sjá hvert það er að ganga. Hún fer svo til læknis á morgun og verður vonandi komin von bráðara í leikskólann sinn, því það leggst nú ekki vel í hana að hanga svona heima. Á laugardaginn vorum við svo öll í mat hjá Ástu, Áma og Elsu Björg, þar voru dýrindis kræsingar fram bornar og átu allir þar til út úr flæddi. Um kvöldið hittumst við svo nokkrir í "félagsmiðstöðinni" okkar og gripum í pókerspil, pílu og borðtennis. Kvöldið var því ekki búið fyrr en ansi seint en frábært engu að síður. Annars erum við í fantaformi og veðrið hefur verið alveg þokkalegt hér upp á síðkastið, rignir svolítið en það er nokkuð hlítt bara. Við hlökkum svo bara til að koma heim í snjó og frost, svo það er eins gott að það verði allt á kafi þegar við komum
»
26.11.2007 20:35:24 / grb
Hér eru nokkrar myndir frá partýinu mikla....... lítur samt allt rólega út því ég þurfti að forða myndavélinni þegar fjörið fór virkilega að byrja. Kristín frænka mín í Hafnafirðinum á svo afmæli í dag og er orðin hrikalega fullorðin sem gerir mig hrikalega ga........ekki orð um það meir. Til hamingju með daginn stínsa mín.
»
25.11.2007 10:59:02 / hrv
Það hefur mikið verið að gerast hjá okkur í Lundi undanfarna daga. Eins og greint var frá á síðunni fórum við í mat til Níníar og hennar ektamanns á fimmtudagskvöldið og það var æðislegt. Svo var Birna með náttfatapartý á föstudaginn í tilefni af afmælinu sínu. Hérna voru 13 hressar skvísur sem dönsuðu og fóru í eltingarleik og fengu svo pizzur að lokum. Við Gummi og Freyja vorum alveg búin á því eftiri partýið. Freyju fannst þetta rosaspennandi fyrsta hálftímann svo varð hún frekar þreytt á látunum. En Birna var glöð og það var nú tilgangurinn. Svo kom bekkjarsystir mín í mat til okkar í gærkvöldi, hún Goya frá Íran. Við gáfum henni íslenskt rúgbrauð og íslenskan grafinn lax í forrétt og henni líkaði það vel. Svo var bara framreiddur spænskur kjúklingaréttur í aðalrétt. Mjög notalegt og gaman. En Birna vaknaði lasin í morgun, er svooooo illt í maganum, svo þegar hún kúrir hjá mér er Freyja ekki sátt, alls ekki, hún vill eiga mömmu sína alein. En hún kemst ekki upp með það því Gummi minn er vant við látinn, er að klára skýrslu og læra fyrir próf á morgun. Að lokum eiga tvær mætar manneskjur afmæli í dag og viljum við senda þeim okkar bestu afmælisóskir. Þetta eru þau Benedikt Gunnar Benediktsson frá Kvistum og Björg nokkur Þórsdóttir búsett í Skipholti. hrv
»
24.11.2007 14:21:59 / grb
27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" codebase="http://fpdownload.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=8,0,0,0" width="450" height="370">
»
21.11.2007 21:08:40 / grb
Jæja við höldum ótrauð áfram að rækta samband við íslendinga í Lundi en við vorum að koma heim úr matarboði hjá Níní og Kidda, en Níni var með okkur á sænskunámskeiðinu síðasta vetur í Mími. Freyju fannst frábært að koma til þeirra því það var svo mikið af dóti og þrennt af öllu, þau eiga nefnilega þríbura sem er á svipuðum aldri og Freyja og svo eiga þau einn strák sem er þriggja ára. Þau búa hér í næsta hverfi og við vorum svona 10 mín að hjóla hvora leið og Freyja mín sofnaði nú bara á heimleiðinni. Þegar heim var komið kíkti ég á sjónvarpið og sá að ísland var að tapa 3-0 fyrir dönum......er það ekki varnarsigur, hafa menn ekki séð það verra ? Jæja þá er að snúa sér aftur að náminu !!!
»
12.11.2007 19:08:32 / grb
Jæja ég hélt að ég þyrfti nú ekki að segja þetta meðan ég væri hérna úti en í morgun þurfti ég að "skafa"!! Það er náttúrulega stórundarlegt þar sem við erum bara með reiðhjól hér í Lundi, en þannig var nú mál með vexti að hnakkurinn á hjólinu var all svakalega klakaður eftir nóttina og langaði mig nú ekki mikið að þýða klakann með bakhlutanum á leiðinni á leikskólann. Stóllin hennar Freyju var inni í geymslu svo ekki þurfti að skafa hann. Þennan sama morgun fóru tengdaforeldrar mínir heim til Íslands eftir stórskemmtilega vikulanga dvöl hjá okkur hér í Lundi. Mikið var kíkt í verslanir en einnig nýttu þau heiðurshjón tímann vel við að skoða sig um í bænum og létta undir með okkur Helgu þar sem þau dúlluðu með litlu dömurnar fram og aftur. Biggi gerði einnig létta könnun á sænska bjórnum og eldaði fyrir okkur sitt einstaka "göööömmmms". 
Birgir og göööömsið Nú er svo KALDUR raunveruleikinn tekinn við og Helga byrjuð í heimapróf no. 2 (henni gekki mjög vel með það fyrsta) og meira en nóg að gera í skólanum hjá mér. Hópverkefnið sem við Ásta erum að vinna að með tveimur frökkum (hér er pláss fyrir brandara um Frakka sem ég ætla ekki að nota en þið megið nýta að vild ) er á fullu og við erum að verða létt stressuð því við erum enn bara að forrita en eigum eftir að prófa svo á raunverulegu kerfi og fá það til að virka !
Annars gengur þetta allt eins og í sögu og við erum bara farin að hlakka til að koma HEIM um jólin og hitta ykkur öll. Þegar lítið er að gera hjá mér þessa dagana (sem hefur aðalega verið á nóttunni) er ég að dunda við að koma upp nýrri bloggsíðu og munum við svo færa okkur héðan og á hana. Ég hef verið að prófa allavega "fídusa" sem mig langar að hafa á henni og því hefur þetta tekið lengri tíma en ég ætlaði mér. Kanski hef ég slembibakgrunn svona til að gleðja hann Bjarna vin minn en hann er sérlegur áhugamaður um slíka bakgrunna. Ég mun ekki hafa þetta lengra í bili en smelli því í stað inn nokkrum myndum frá síðustu dögum, og Robbi, takk fyrir hugulsemina og trúna á mér en ég er hvergi nærri því að læra yfir mig  Myndir birtar með góðfúslegu leyfisleysi Bigga
»
05.11.2007 15:30:51 / grb
Í dag eiga tvær merkar konur afmæli en á þeim munar ekki nema 60 árum. Þetta eru auðvitað elskuleg móðir mín, Marta nokkur á Stóra-Vatnsskarði og Birna Rún hálfdóttir mín Hér var auðvitað glatt á hjalla í dag og mun sennilega gleðin stand fram á kvöld.
Þessi dama vill koma á framfæri þökkum til allra sem hafa glatt hana með gjöfum og kveðjum í dag og undanfarna dag.
»
04.11.2007 19:22:48 / hrv
Gummi minn er núna upp á Kastrup til að taka á móti Birnu Rún
(hún á afmæli á morgun) sem kemur í fylgd ömmu Birnu og afa Bigga.
Birna er búin að vera á Íslandi hjá pabba sínum í rúma viku en mér
finnst hún búin að vera miklu lengur. Ég hlakka því mikið til að
knúsa hana og auðvitað góðu gestina líka sem ætla að heiðra okkur
með nærveru sinni í viku. Freyja fær meira að segja að vera í fríi
frá leikskólanum á morgun til að endurnýja kynnin við ömmu og afa.
Birna þarf hins vegar að mæta í skólann og verður hún örugglega
þreytt í fyrramálið.
Góðar stundir, Helga
»
Síður: 1 2 3 ... 24
|
|